Fróðleikur

Kírópraktík er orð sem á uppruna sinn úr grísku og þýðir það sem gert er með höndum, kíró þýðir hönd og praktík það sem stundað er. Þetta vísar til þess að starf kírópraktors er unnið með höndunum.

Uppbygging líkamans

Taugakerfið samanstendur af heilanum, mænunni og taugunum. Mænan er í raun framlenging af heilanum og taugarnar framlengja mænuna. Taugakerfið stjórnar flestum aðgerðum og frumum líkamans. Óhætt er að segja að almenn heilsa velti mikið á því að það geti starfað óhindrað. Höfuðkúpan hýsir og ver heilann. Hryggjarsúlan sem samanstendur af tuttugu og fjórum hreyfanlegum hryggjarliðum ver mænuna á sama hátt. Taugarnar koma svo út frá mænunni á milli hryggjarliðanna og greinast í óteljandi anga sem dreifast um allan líkamann. Heilinn er eins konar stjórnstöð sem sendir boð um mænuna, taugarnar og til líffæra og frumna líkamans um hvað gera skuli. Í því sambandi má nefna meltinguna, starfsemi hjartans, kirtlastarfsemina, aðlögun líkamans að innri og ytri aðstæðum og hreyfingu. Heilinn fær svo upplýsingar um stöðu mála sömu leið til baka og tekur ákvarðanir um skipanir til líffæranna byggðar á þessum upplýsingum. Það er því heilsu okkar óendanlega mikilvægt að boðin séu ótrufluð.

Hvers vegna að leita til kírópraktors?

Stundum verðum við fyrir hnjaski af einhverju tagi. Þá getur hryggjarliður misst stöðu sína, brjósk og liðbönd skaðast og bólga og örvefur geta byggst upp í liðnum. Sé bólgan umtalsverð getur hún truflað starfsemi taugakerfisins. Þetta veldur því að boðskiptin á milli stjórnstöðvarinnar (heilans) og frumna líkamans brenglast. Margir ímynda sér að þetta hljóti að vera sárt en sannleikurinn er sá að mögulegt er að hafa töluverða taugatruflun án þess að upplifa sársauka eða önnur einkenni. Líkaminn starfar þá ekki eins vel og hann gæti gert. Þetta kemur oft fram í greinilegri vanheilsu af einhverju tagi, stundum eru áhrifin minna greinileg.

Hverjir leita til kírópraktors?

Algengt er að fólk leiti til kírópraktora vegna verkja af ýmsu tagi, þó eru ástæðurnar margvíslegar. Ekki er nauðsynlegt að bíða þar til sársauki eða önnur einkenni koma upp. Alls konar fólk kemur, allt frá börnum til háaldraðra einstaklinga.

Starf kírópraktors

Kírópraktor hefur það starf að finna og greina liðinn sem farið hefur úr skorðum, bólgnað og truflar nærliggjandi taugar. Hann hefur svo jákvæð áhrif á stöðu hans og hreyfigetu. Til þess notar kírópraktorinn hendurnar. Hann beitir nákvæmu, stuttu og oftast snöggu átaki til þess að færa liðinn til betri vegar. Liðurinn nýtir sér betri stöðu og hreyfingu til þess að losa uppsafnaða bólgu út úr liðnum. Þannig endurheimtum við heilsu liðarins og þá getur taugakerfið haldið áfram að stjórna líkamanum á eðlilegan máta óáreitt, sem er takmarkið með starfi kírópraktorsins.

Þar sem sömu lögmál gilda um aðra liði líkamans er oft unnið með aðra liði sem orðið hafa fyrir hnjaski, svo sem kjálkaliði, axlarliði, olnboga, úlnliði, hné og ökkla.

Lengd meðhöndlunar

Algengt er að fólk komi ört í meðhöndlun fyrstu vikurnar. Hve oft og hve lengi er einstaklingbundið og veltur á mörgum þáttum. Ástandið á liðnum hefur áhrif, þ.e. hve bólginn hann er, mögulegar langtímaskemmdir og slit. Aldur fólks hefur áhrif og lífsstíll er mjög mikilvægur, hvíld, mataræði, regluleg hreyfing, beiting fólks við störf sín og margt fleira. Þegar liðurinn fer að ná stöðugleika fækkar endurkomum hratt. Gott er að koma svo reglulega til kírópraktors, líkt og við gerum til tannlæknis, til þess að viðhalda bættri virkni liðarins.

Nám kírópraktora

Kírópraktík er þriðja stærsta heilbrigðisstétt í heimi. Nám kírópraktora er að lágmarki fjögur ár á háskólastigi. Sérstakar matsstofnanir sjá um að veita skólunum viðurkenningu og aðhald. Námið samanstendur af taugafræði, röntgenfræði, sjúkdómafræði, líffærafræði, efna og lífefnafræði, eðlis og lífeðlisfræði og fræðum þeim sem tengjast kírópraktíkinni sérstaklega, og mörgu fleiru. Ekki þarf tilvísun frá lækni þegar leitað er til kírópraktors. Landlæknisembættið hefur eftirlit með kírópraktorum, líkt og öðrum heilbrigðisstéttum og veitir þeim starfsleyfi. Aðeins þeir sem hafa tilskylda menntun og fullt starfsleyfi mega kalla sig kírópraktora.